Fótbolti

Sara Björk spilar ekki með Evrópumeisturunum á næsta ári | Lyon vann Meistaradeildina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ada Hegerberg skoraði í úrslitaleiknum og varð markadrottning Meistaradeildarinnar 2015-16. Hér fagnar hún marki sínu í kvöld.
Ada Hegerberg skoraði í úrslitaleiknum og varð markadrottning Meistaradeildarinnar 2015-16. Hér fagnar hún marki sínu í kvöld. Vísir/Getty
Franska liðið Olympique Lyonnais vann í kvöld Meistaradeild kvenna í fótbolta eftir sigur á þýska liðinu Wolfsburg í úrslitaleik en vítakeppni þurfti til að fá sigurvegara.

Sarah Bouhaddi, markvörður Olympique Lyonnais, var hetja síns liðs en hún varði tvær síðustu vítaspyrnur þýska liðsins eftir að Lyon hafði lenti undir í vítakeppninni.

Hin tvítuga Ada Hegerberg frá Noregi, var tveimur mínútum frá því að skora sigurmark Lyon í leiknum en hún var næstum orðin að skúrki í vítakeppninni þegar hún lét verja frá sér fyrstu vítaspyrnu franska liðsins í vítakeppninni.

Lyon skoraði hinsvegar úr síðustu fjórum vítaspyrnum sínum sem tryggði liðinu titilinn. Þetta er í þriðja sinn sem Lyon vinnur Meistaradeild kvenna en liðið vann einnig 2011 og 2012.

Íslenska landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir er á leiðinni til Wolfsburg og mun spila með þýska liðinu á næsta tímabili. Eftir leikinn í kvöld er ljóst að hún spilar ekki með Evrópumeisturunum á næsta ári.

Ada Hegerberg kom Lyon í 1-0 strax á 12. mínútu með sínu þrettánda marki í Meistaradeildinni á þessu tímabili.

Lyon var mun betra liðið og skapaði sér mun fleiri færi í leiknum en tókst ekki að bæta við marki sem kom heldur betur í bakið á þeim.

Það fór svo á endanum að þýski framherjinn Alexandra Popp náði að jafna metin tveimur mínútum fyrir leikslok með skalla eftir fyrirgjöf frá Tessa Wullaert.

Það varð því að framlengja leikinn en þar tókst hvorugu liðinu að skora og úrslitin réðust því í vítakeppni.

Vítaspyrnukeppnin:

Wolfsburg - Lyon 3-4

1-0 Alexandra Popp, mark

    Ada Hegerberg, varið af Almuth Schult

2-0 Isabel Kerschowski, mark

2-1 Lotta Schelin, mark

3-1 Babett Peter, mark

3-2 Wendie Renard, mark

    Nilla Fischer, varið af Sarah Bouhaddi

3-3 Griedge M'Bock Bathy, mark

    Élise Bussaglia, varið af Sarah Bouhaddi

3-4 Saki Kumagai, mark




Fleiri fréttir

Sjá meira


×