Menning

Ný ópera um fótbolta og önnur um Selsham

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 "Það verður allt á suðupunkti í bænum,“ segir Guja Sandholt, listrænn stjórnandi Óperudaganna í Kópavogi.
"Það verður allt á suðupunkti í bænum,“ segir Guja Sandholt, listrænn stjórnandi Óperudaganna í Kópavogi. Vísir/Anton
„Óperudagar í Kópavogi er glæný hátíð sem verður haldin fyrstu fimm dagana í júní og þá verður allt á suðupunkti í bænum,“ segir Guja Sandholt, listrænn stjórnandi Óperudaga.

„Reynar þjófstörtuðum við á laugardaginn með frumflutningi Fótboltaóperunnar sem við fengum Helga Rafn Ingólfsson, tónskáld í London, til að skrifa. Það er örstutt verk sem Tryggvi Gunnarsson stjórnar, samið bæði í tilefni af Óperudögunum og EM og í henni taka þátt sex einsöngvarar, auk barnakórs Kársness, sem Þórunn Björnsdóttir þjálfar.“

Guja segir Fótboltaóperuna verða flutta öðru hverju á hátíðinni og hvetur áhugasama til að skella sér í krakkagönguna eða á lokatónleikana í Salnum.

Listafólkið sem kemur fram á Óperudögum er ýmist að ljúka námi eða byrjað að starfa við sitt fag, að sögn Guju.

Hún nefnir meðal annars Aron Cortes, litla bróður Garðars Thors. Hann verður í nýrri sýningu sem heitir Selshamurinn. Árni Kristjánsson skrifaði handritið sem byggir á samnefndri þjóðsögu og Matthildur Anna Gísladóttir tónlistarstjóri valdi óperutónlist við.

Selshamurinn verður fluttur í Leikfélagi Kópavogs, Funalind 2 og líka sýningin Poppea Remixed með óperutónlist úr Krýningu Poppeu eftir Monteverdi í bland við poppmúsík hollenska dúósins Sommerhus.

Guja vekur sérstaka athygli á óperugöngum. Þær hefjast utan við garðskálann í Gerðarsafni, liggja um hjarta Kópavogs og kíkt verður á staði þar sem búast má við óvæntum uppákomum. „Ég veit ekki til að boðið hafi verið upp á slíkar göngur hér á landi áður,“ segir hún.

„Tugir fólks koma fram á Óperudögum í Kópavogi, lífga upp á bæinn og langflestir viðburðirnir eru ókeypis. Fólk getur fylgst með Kristni Sigmundssyni og nemendum hans í Salnum, tekið þátt í kabarettkvöldi í garðskála Gerðarsafns eða stungið sér inn á stofutónleika í heimahúsum,“ segir Guja og bendir á heimasíðu hátíðarinnar: www.operudagar.is.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 30. maí 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.