Íslenski boltinn

Pepsi-deild kvenna í beinni á Vísi og Sport 2 í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Harpa Þorsteinsdóttir, leikmaður Stjörnunnar.
Harpa Þorsteinsdóttir, leikmaður Stjörnunnar. vísir/stefán
Pepsi-deild kvenna hefst í kvöld með fjórum leikjum og einn þeirra verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Sport 2.

Það er leikur Stjörnunnar og Þór/KA en leikurinn verður í opinni dagskrá á Sport 2 og einnig hér á Vísi.

Eftir helgina hefst síðan sérstakur markaþáttur um Pepsi-deild kvenna sem verður í umsjón Helenu Ólafsdóttur.

Leikir kvöldsins:

Kl. 18.00: Stjarnan - Þór/KA

Kl. 18.00: ÍBV - Selfoss

Kl. 19.15: Fylkir - Valur

Kl. 19.15: Breiðablik - KR




Fleiri fréttir

Sjá meira


×