Fótbolti

Madrídarliðin fylgja Barcelona eins og skugginn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lukas Vazquez fagnar marki sínu í kvöld.
Lukas Vazquez fagnar marki sínu í kvöld. vísir/getty
Real Madrid vann sannfærandi sigur á Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, 3-0.

Karim Benzema kom Real yfir á 41. mínútu en þeir Lucas Vazquez og Luka Modric innsigluðu sigur Madrídinga í síðari hálfleik.

Grannliðið í Atletico Madrid vann einnig sigur í kvöld er liðið hafði betur gegn Athletic Bilbao á útivelli, 1-0, með marki Fernando Torres á 38. mínútu.

Torres hefu rnú skorað í fimm leikjum í röð fyrir Atletico og alls níu mörk á leiktíðinni.

Barcelona vann fyrr í kvöld ótrúlegan 8-0 sigur á Deportivo er í efsta sæti deildarinnar með 79 stig, rétt eins og Atletico, en með betra markahlutfall. Real er svo í þriðja sætinu með 78 stig en þessi þrjú lið hafa afgerandi forystu í deildinni.

Fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu og útlit fyrir afar spennandi lokasprett.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×