Menning

Efnir til afmælistónleika

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Margrét J. Pálmadóttir fagnar að sjálfsögðu stórafmælinu með tónlist.
Margrét J. Pálmadóttir fagnar að sjálfsögðu stórafmælinu með tónlist. Vísir/GVA
„Ég er mikið afmælisbarn. Ég fæ alltaf svona sérstaka þakklætistilfinningu á afmælisdaginn og hún minnkar ekkert með árunum. Hún bara eykst,“ segir kórstjórinn, tónlistarkonan og söngkonan Margrét J. Pálmadóttir sem er sextug í dag og bætir við að hún elski tölurnar bara meira eftir því sem þær hækka.

„Þó ég hafi kannski verið hrædd við töluna 40 þá finnst mér bara „grace“ að fá að verða 60 ára. Og ég tala nú ekki um 80 eða 90 ára. Ég stefni í 100,“ segir hún og skellir upp úr.

Afmælinu fagnar þessi mikla tónlistarkona að sjálfsögðu með tónlist allt um lykjandi en hinn eiginlegi fagnaður fer fram í Fríkirkjunni á laugardaginn með tónleikunum. Sjálfum afmælisdeginum eyðir hún í faðmi fjölskyldunnar og við íhugun og slökun fyrir tónleikana.

„Ég verð með djass-, blús- og gospel-tónleika í Fríkirkjunni. Ég ætla að brjótast út úr skelinni og syngja með hljómsveit, kór og öðrum einsöngvara svona smá blús og gospel. Ég er aðeins að taka mig á því ég hef þagað dálítið lengi sem sólóisti en nú ætla ég bara út úr skelinni með þetta alla leið,“ segir hún.

Margrét er stjórnandi og stofnandi kórsins Vox feminae sem stofnaður var árið 1993 og stofnandi, auk fleiri, sönghússins Domus Vox í Reykjavík.

Á tónleikunum verður öllu til tjaldað, hljómsveit auk 100 kvenna kórs sem skipaður er konum á aldrinum 15-75 ára en þeir fara líkt og áður sagði fram í Fríkirkjunni á laugardaginn og hefjast klukkan 18.00. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.