Íslenski dansflokkurinn frumsýnir tvö ný dansverk Stefán Árni Pálsson skrifar 28. apríl 2016 16:30 Persóna verður frumsýnd 4. maí. vísir
Sýning Íslenska dansflokksins, Persóna, verður frumsýnd 4. maí á Nýja sviði Borgarleikhússins þar sem tvö ný dansverk eftir þrjá íslenska danshöfunda verða frumflutt á Íslandi. Persóna er einstakt og persónulegt danskvöld þar sem áhorfendur munu sjá afrakstur tveggja ólíkra vinnuaðferða í sýningu þar sem dansarinn sjálfur er í forgrunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenska dansflokknum. Dansverkin eru: Neon eftir Hannes Þór Egilsson. Hannes hóf æfingaferlið fyrir Neon með algjörlega óskrifað blað og samdi allar hreyfingar verksins í æfingastúdíói Íd í viðurvist dansaranna. Með sinn eigin dansarabakgrunn að leiðarljósi leggur Hannes áherslu á mikilvægi þess að vera meðvitaður um hvert einasta augnablik þegar dansað er. Með þessu leitast hann eftir því að gera ásetning dansarans sýnilegri og fókusinn sterkari sem gerir þá hvert smáatriði áhrifamikið.What a feeling eftir Höllu Ólafsdóttur og Lovísu Ósk Gunnarsdóttur. Í stöðugri leit að nýjum aðferðum við að skapa dans nýta Halla og Lovísa sér hið hefðbundna og endurvinna það í von um að hið einstaka brjótist fram. Þær vilja draga dansarann fram sem einstakling og hafa því í samvinnu við dansara Íslenska dansflokksins skapað uppáhalds sólódans hvers og eins. Sólódans byggðan á löngunum, þrám og sögu hvers dansara fyrir sig. Æfingaferlið hófst með bréfaskriftum á milli danshöfunda og dansara sem voru síðan notaðar sem grunnur að sköpunarferlinu.Um danshöfundana:Hannes Þór Egilsson útskrifaðist frá London Contemporary Dance School árið 2006 (BA með láði) og var fastráðinn sem dansari hjá Íslenska dansflokknum næstu 7 árin. Síðastliðin þrjú ár hefur hann tekið að sér einstök verkefni hjá dansflokknum, sinnt kennslu og unnið hjá Borgarleikhúsinu (þ.á.m. í tengslum við Billy Elliot). Hannes vann um tíma með listahópi Kristjáns Ingimarssonar og var meðal annars í stórsýningunni BLAM! sem hefur farið sigurför um heiminn. Nýlegasta verkefni Hannesar er sýningin Óður og Flexa halda afmæli sem dansflokkurinn frumsýndi í lok janúar en Hannes fór þar með annað titilhlutverkanna ásamt því að vera annar tveggja höfunda sýningarinnar.Halla Ólafsdóttir og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir hafa verið vinir síðan þær muna eftir sér og unnið saman undir nafninu Samsuðan & co síðan 2005. Í leit að nýjum aðferðum við að skapa dans hefur stefna Samsuðunnar & co. þróast og breyst en fyrir hvert verkefni hafa þær boðið til sín ólíkum listamönnum, bæði íslenskum sem erlendum, til að fá inn mismunandi áhrif. Þær leggja áherslu á að skapa aðstæður þar sem að listamennirnir geta deilt hugmynda- og aðferðafræðum sínum og saman kannað áður óþekkt svæði. Saman hafa þær skapað verkin Kólnandi Kaffi, Hundaheppni, Grease the Deleted Scenes og What a Feeling. Báðar vinna þær að danslistinni, hvor sínum megin Atlantshafsins. Halla er búsett í Stokkhólmi og starfar sem danshöfundur og dansari víða um Evrópu. Lovísa hefur tekið þátt í velflestum uppfærslum Íslenska dansflokksins síðan 2005 en einnig starfað í sjálfstæða geiranum sem danshöfundur og dansari. Sunnudaginn 22. maí verðursérstök hátíðarsýning á Listhátíð í Reykjavíkþar sem m.a. verður boðið upp á listamannaspjall og freyðivín. Sýnt verður á Nýja sviði Borgarleikhússins og eru sýningar 4/5, 8/5, 12/5, 20/5 og 22/5.Aðstandendur:Dansarar Íd: Aðalheiður Halldórsdóttir, Cameron Corbett, Einar Anton Aas Nikkerud, Halla Þórðardóttir, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir og Þyri Huld ÁrnadóttirDanshöfundur (Neon): Hannes Þór Egilsson Búningahönnuður (Neon): Þyri Huld ÁrnadóttirHugmynd og höfundar (What a Feeling): Halla Ólafsdóttir og Lovísa Ósk GunnarsdóttirMeðhöfundar (What a Feeling) : Dansarar ÍdStílisti (What a Feeling): Elsa Blöndal
Menning Mest lesið Með húsaflutninga á heilanum Lífið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Lífið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Lífið Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Lífið Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Fleiri fréttir „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Sjá meira