Lífið

Kourtney Kardashian brá sér í hlutverk barþjóns á 101 Hótel – Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kourtney er 37 ára í dag.
Kourtney er 37 ára í dag. vísir
Stjörnuparið Kim Kardashian og Kanye West komu til Íslands í gærmorgun með flugi Icelandair frá New York.

Af flugvellinum fóru þau á 101 hótel en í eftirmiðdaginn héldu þau út á land. Dagurinn í gær var viðburðaríkur og héldu hjónin á Friðheima, skammt frá Selfossi, áður en þau fóru að skoða Gullfoss og Geysi.

Kourtney Kardashian, systir Kim, á afmæli í dag og var haldið upp á það á Grillmarkaðnum og 101 Hótel í gærkvöldi. Hún er 37 ára í dag. 

Eftir að hópurinn hafði borðað saman og sungið afmælissönginn fyrir Kourtney Kardashian var förinni haldið á barinn á 101 og þar var djammað vel fram á nótt. Kourtney skellti sér bakvið barborðið og hellti í drykki fyrir liðið og virtist standa sig vel.

Fjölmargar myndir hafa komið fram af kvöldinu á samfélagsmiðlunum og má sjá myndband af afmælisfjöri Kourtney í gærkvöldi.

ICELAND

A photo posted by Kourtney Kardashian (@kourtneykardash) on

ICELAND

A photo posted by Kourtney Kardashian (@kourtneykardash) on

ICELAND

A photo posted by Kourtney Kardashian (@kourtneykardash) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.