Menning

Syngja um sálufélagana Hallgrím og Ragnheiði biskupsdóttur

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Flytjendurnir Ásgeir Páll Ágústsson, Guðrún Ásmundsdóttir, Alexandra og Magnús Ragnarsson.
Flytjendurnir Ásgeir Páll Ágústsson, Guðrún Ásmundsdóttir, Alexandra og Magnús Ragnarsson.
Á hádegistónleikum í Fríkirkjunni í dag flytur Alexandra Chernyshova sópransöngkona brot úr óperunni Skáldið og biskupsdóttirin, ásamt Guðrúnu Ásmundsdóttur sögumanni, Ásgeiri Páli Ágústssyni barítonsöngvara og Magnúsi Ragnarssyni orgelleikara.

Þær Alexandra og Guðrún eru höfundar óperunnar sem var frumflutt árið 2014.

„Við leggjum áherslu á hina djúpu vináttu Hallgríms Péturssonar sálmaskálds og Ragnheiðar Brynjólfsdóttur biskupsdóttur. Þau voru sálufélagar þó að 28 ár skildu þau að í aldri,“ segir Alexandra.

„Hann deildi með henni ljóðum sem hann sýndi ekki öðrum og hann var sá fyrsti sem hún sagði frá ást sinni á Daða og hamingjunni sem henni fylgdi. Meðal þess sem við Ásgeir Páll syngjum í dag er dúettinn Ó, veistu minn vinur.“

Alexandra segir Guðrúnu hafa unnið mikla heimildarvinnu við skrif handritsins, ásamt Ingu Huld Hákonardóttur sagnfræðingi. Meðal þess sem þar komi fram sé að Ragnheiður hafi verið meðal þeirra fyrstu sem Hallgrímur gaf handrit að passíusálmunum. „Þá upplifði hún að hann var ekkert venjulegt skáld, heldur eitthvað miklu meira.“

Tónleikarnir tilheyra tónleikaröðinni Á ljúfum nótum. Þeir hefjast klukkan 12 og taka um hálfa klukkustund. Aðgangseyrir er 1.500 krónur.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 31. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.