Enski boltinn

Pique: Ferguson eins og Guðfaðirinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gerard Pique og Sir Alex á góðri stundu.
Gerard Pique og Sir Alex á góðri stundu. vísirgetty
Gerard Pique, miðvörður Barcelona, verður í eldlínunni í kvöld þegar Evrópumeistararnir mæta Atlético Madrid í Spánarslag í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Sem upphitun fyrir leikinn tók Rio Ferdinand, fyrrverandi miðvörður Manchester United og samherji Pique, viðtal við spænska landsliðsmanninn fyrir BT Sport sem sýnir frá Meistaradeildinni á Englandi.

Pique kom frá Barcelona til Manchester United en átti ekki leið inn í byrjunarliðið þar sem Rio Ferdinand og Nemanja Vidic mynduðu besta miðvarðapar Englands. Spánverjinn sneri því aftur til Barcelona 2008 og varð hluti af einu allra besta liði sögunnar undir stjórn Pep Guardiola.

Ferdinand bað Pique um að bera saman tvo af bestu þjálfurum sögunnar, en miðvörðurinn var svo heppinn að spila bæði fyrir Sir Alex og Pep Guardiola sem mætir í ensku úrvalsdeildina með Manchester City næsta vetur.

„Þegar ég var hjá Manchester United var Sir Alex Ferguson búinn að stýra liðinu í 20 ár þannig hans aðferðir voru töluvert öðruvísi en hjá Guardiola,“ segir Pique.

„Guardiola var mjög ungur og að þjálfa sitt fyrsta lið. Hann var með mjög erfiðar æfingar. Það getur enginn ímyndað sér hversu ákafar æfingarnar voru.“

„Þegar ég var hjá United var það Carlos Queiroz sem sá um æfingarnar en Ferguson var aðeins fyrir utan. Hann stýrði öllu og tók sér aðra stöðu,“ segir Pique.

Ferdinand spurði þá hvort Ferguson hefði verið eins og Guðfaðirinn. „Nákvæmlega,“ svaraði Pique og bætti við: „Guardiola var alla daga á æfingasvæðinu en báðir hafa átt magnaða ferla,“ sagði Gerard Pique.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×