Fótbolti

Suarez hetja Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Atletico Madrid er enn á lífi í einvígi sínu gegn Barcelona eftir 2-1 tap á útivelli í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Fernando Torres var allt í öllu í fyrri hálfleik. Hann keyrði á öllum hestöflum og kom Atletico yfir í fyrri hálfleik.

Hann keyrði þó allt of hratt því hann nældi sér í tvö heimskuleg gul spjöld og var kominn í sturtu eftir 35 mínútna leik.

Þennan liðsmun nýtti Barcelona sér í síðari hálfleik er það setti gríðarlega pressu á vörn Atletico sem þó varðist vel.

Eitthvað varð undan að láta og það gerði það er Suarez mokaði boltanum yfir línuna og hann bætti öðru marki við skömmu síðar.

Börsungar sóttu áfram og reyndu að bæta við en það gekk ekki.

Torres fær rauða spjaldið. Suarez jafnar fyrir Barcelona. Suarez skorar aftur. Nú með skalla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×