Fótbolti

Tólf ár síðan að gullsending Eiðs Smára sendi Arsenal út úr Meistaradeildinni | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen fagnar sigrinum fyrir tólf árum.
Eiður Smári Guðjohnsen fagnar sigrinum fyrir tólf árum. Vísir/AFP
BBC minnist þess á síðu sinni að í dag séu nákvæmlega tólf ár síðan að Chelsea sló Arsenal út úr átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar en íslensku landsliðsmaður átti mikinn þátt í þeim sigur.

Chelsea vann seinni leikinn 2-1 á Highbury og þar með 3-2 samanlagt en fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli á Stamford Bridge.

Eiður Smári Guðjohnsen skoraði mark Chelsea í fyrri leiknum og kom þá liðinu í 1-0 áður en Robert Pires jafnaði.

Í seinni leiknum á Highbury kom José Antonio Reyes Arsenal í 1-0 í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Frank Lampard jafnaði á 51. mínútu og Eiður Smári lagði síðan upp sigurmark Wayne Bridge þremur mínútum fyrir leikslok.

Eiður Smári fékk boltann frá Wayne Bridge og las vel hlaup bakvarðarins inn í teiginn og senda hann í fyrstu snertingu milli fóta varnarmanns Arsenal og til Bridge sem afgreiddi hann í marknetið.

„Þetta var frábær sending frá Eiði. Ég átti ekki von á að fá boltann aftur frá honum þar sem hann var í erfiðri aðstöðu en hann gerði vel og ég þurfti ekki að gera neitt nema að senda boltann innanfótar í netið," sagði Wayne Bridge um stoðsendinguna frá Eiði Smára eftir leikinn.

Chelsea mætti  Mónakó í undanúrslitum keppninnar en féll út 5-3 samanlagt. Porto vann  Mónakó 3-0 í úrslitaleiknum en knattspyrnustjóri liðsins var Jose Mourinho, sem tók síðan við Chelsea-liðinu um haustið.

Markið og stoðsendinguna hans Eiðs Smára í þessum leikjum á móti Arsenal fyrir tólf árum má sjá í myndböndunum hér fyrir neðan.

Sigurstoðsending Eiðs Smára á móti Arsenal Eiður Smári skorar á móti Arsenal



Fleiri fréttir

Sjá meira


×