Fótbolti

Real Madrid valtaði yfir Eibar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ronaldo skoraði sigurmark Real Madrid gegn Barcelona um síðustu helgi.
Ronaldo skoraði sigurmark Real Madrid gegn Barcelona um síðustu helgi. vísir/getty
Real Madrid vann auðveldan sigur á Eibar, 4-0, í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

James Rodriguez skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins fimm mínútna leik. Lucas Vazquez kom liðinu í 2-0 á 18. mínútu og aðeins einni mínútu síðar skoraði Cristiano Ronaldo þriðja marki liðsins. Jese Rodriguez skoraði síðan fjórða mark leiksins rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og var staðan orðin 4-0.

Ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum og náði Real Madrid því í þrjú stig. Real Madrid skaust því í annað sæti deildarinnar en liðið er með 72 stig, fjórum stigum á eftir Barcelona sem er með 76 stig. Barca mætir Real Sociedad í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×