Fótbolti

Tevez var nálægt því að fara til Atlético Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tevez náði þeim merka áfanga í fyrra að vinna tvöfalt í tveimur löndum.
Tevez náði þeim merka áfanga í fyrra að vinna tvöfalt í tveimur löndum. vísir/getty
Argentínski framherjinn Carlos Tevez segist hafa verið nálægt því að ganga í raðir Atlético Madrid síðasta sumar.

Tevez yfirgaf Juventus eftir síðasta tímabil og sneri aftur til Boca Juniors í heimalandinu. Hann segir þó að litlu hafi munað að hann færi til Atlético Madrid sem landi hans, Diego Simeone, stýrir.

„Simeone hafði samband við mig og ég var spenntur fyrir hugmyndinni,“ sagði Tevez og bætti því við að hann hefði ekki getað sagt nei við uppeldisfélagið.

„Síðasta sumar var eina tilboðið sem ég fékk frá Spáni frá Atlético en sumarið áður hafði Real Madrid áhuga á mér,“ sagði Tevez ennfremur en hann varð tvöfaldur meistari með Boca Juniors í fyrra, líkt og hann gerði með Juventus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×