Fótbolti

Bale orðinn markahæsti Bretinn á Spáni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bale fagnar með Sergio Ramos.
Bale fagnar með Sergio Ramos. vísir/getty
Gareth Bale hrifsaði met af Gary Lineker í spænska boltanum í gær.

Bale skoraði þá 43. mark sitt í spænsku úrvalsdeildinni er Real Madrid skellti Sevilla.

Lineker lék með Barcelona á sínum tíma og var ekkert fúll að hafa misst metið í hendur Bale eins og sjá má hér að neðan.

Þrátt fyrir þó nokkur meiðsli þá hefur Bale verið iðinn við kolann en þessi 43 mörk hafa komið í aðeins 76 leikjum.


Tengdar fréttir

Real í engum vandræðum með Sevilla

Real Madrid lenti í litlum vandræðum með Sevilla á heimavelli í kvöld, en tvær vítaspyrnur fóru forgörðum í leiknum. Lokatölur 4-0 sigur heimamanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×