Fótbolti

Barcelona valtaði yfir Getafe

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lionel Messi.
Lionel Messi. vísir/getty
Barcelona niðurlægði Getafe, 6-0, í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en leikurinn fór fram á Nou Camp. 

Neymar skoraði tvö mörk í leiknum en Messi misnotaði eina vítaspyrnu og hefði getað gert tvö einnig en hann skoraði eitt í dag. 

Juan Rodriguez skoraði sjálfsmark fyrir Getafe og þeir Munir El Haddadi og Arda Turan voru með sitt markið hvor. Lionel Messi lagði aftur á móti upp þrjú mörk. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×