Fótbolti

Real Madrid slapp með skrekkinn gegn Las Palmas | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sergio Ramos skoraði í kvöld.
Sergio Ramos skoraði í kvöld. vísir/getty
Real Madrid vann góðan útisigur, 2-1, á Las Palmas í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram á heimavelli Las Palmas.

Fyrsta mark leiksins skoraði varnarmaðurinn Sergio Ramos eftir rúmlega tuttugu mínútna leik og var staðan 1-0 í hálfleik fyrir Real Madrid.

Það leit allt út fyrir að Real væri að fara með sigur af hólmi en rétt undir lok leiksins náðu heimamenn að jafna metin, 1-1, en þar var að verki Willian Jose sem vippaði boltanum laglega yfir Navas í marki Real Madrid. Strax í næstu sókn sprengdu leikmenn Real Madrid upp völlinn og náði að skora sigurmarkið eftir hornspyrnu þegar Casemiro kom boltanum í netið á 89. mínútu leiksins.

Real Madrid er í þriðja sæti deildarinnar með 63 stig en Las Palmas er í 15. sætinu með 30 stig.

Mörkin úr leiknum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×