Fótbolti

Beckham lenti í harkalegu rifrildi við varaforseta Chelsea

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þeir feðgarnir á leiknum.
Þeir feðgarnir á leiknum. vísir/BPI/javier Garcia
David Beckham mun hafa lent í harkalegu rifrildi við Joe Hemani, varaforseta Chelsea, á miðvikudagskvöldið á Stamford Bridge þegar PSG komst áfram í Meistaradeildinni gegn heimamönnum.

PSG vann leikinn 2-1 og samanlagt 4-2 í einvíginu. Eins og allir vita lék Beckham með PSG á sínum tima og fagnaði hann því mikið upp í stúku ásamt syni sínum Brooklyn.

Varaforsetinn mun hafa beðið þá um að hafa sig hægan og slaka á. Samkvæmt frett á Daily Mail mun það ekki hafa farið vel í Beckham og því rifust þeir nokkuð harkalega í stúkunni.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×