Fótbolti

Sjöþrautarkona grýtti fjarstýringu sinni í sjónvarpið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Samsett Mynd/Getty/Twitter
Kelly Sotherton, fyrrum sjöþrautarkona og eldheitur stuðningsmaður Arsenal, átti vægast sagt erfitt með sig þegar hún fylgdist með sínu liði gegn Barcelona í kvöld.

Staðan var markalaus þar til að Lionel Messi kom Börsungum yfir eftir skyndisókn á 71. mínútu. Messi fékk svo stuttu síður vítaspyrnu sem hann skoraði úr en þá missti Sotherton stjórn á skapi sínu.

Sjá einnig: Messi sá um Arsenal | Sjáðu mörkin

Af lýsingu á Twitter-síðu hennar að dæma henti Sotherton fjartsýringu sinni í sjónvarpið með neðangreindum afleiðingum.

Sotherton hafði spáð því í desember að Arsenal myndi slá Barcelona úr keppni í Meistaradeildinni og þó svo að síðari viðureignin er eftir í rimmunni er erfitt að sjá fyrir sér að það verði raunin.

Sotherton vann bronsverðlaun í sjöþraut kvenna á Ólympíuleikunum í Aþenu árið 2004 og brons á HM í frjálsum þremur árum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×