Fótbolti

Markalaust í Eindhoven

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pereiro fær hér að líta rauða spjaldið.
Pereiro fær hér að líta rauða spjaldið. vísir/getty
Atletico Madrid hélt hreinu í tólfta sinn í síðustu tólf Meistaradeildarleikjum sínum er liðið gerði markalaust jafntefli gegn PSV í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í Eindhoven í kvöld.

PSV missti Gaston Pereiro af velli með rautt spjald í síðari hálfleik en Spánverjarnir náðu ekki að nýta sér þann liðsmun en eru þó í góðri stöðu fyrir síðari leik liðanna á Spáni.

Luciano Vietto átti þó skot í fyrri hálfleik sem var varið á marklínu og þá varði Jeroen Zoet vel í marki PSV frá Antoine Griezmann. Besta færi PSV fékk Davy Propper í síðari hálfleik en allt kom fyrir ekki.

Síðari leikur liðanna fer fram á Vicente Calderon-leikvanginum þann 15. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×