Tónlist

Tónlistarkonan Karó sendir frá sér nýtt lag

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Karó sigraði meðal annars Söngvakeppni framhaldsskólanna í fyrra.
Karó sigraði meðal annars Söngvakeppni framhaldsskólanna í fyrra. mynd/hlynur snær andrason
Tónlistarkonan Karó sendir í dag frá sér nýtt lag sem ber titilinn Wolfbaby en það er samið af henni og Loga Pedro, sem pródúserar lagið einnig. „Þetta er annað lagið sem ég sendi frá mér eftir Silhouette sem kom út í lok ágúst 2015. Þetta lag fjallar í rauninni um að hætta að leyfa einhverjum sem skiptir mann engu máli að hafa áhrif á sig og það dregur nafn sitt af því. Wolfbaby er orð sem ég var kölluð í niðrandi tilgangi en ég ákvað að leyfa því ekki að hafa neikvæð áhrif á mig og mér fannst skemmtilega írónískt að nefna lagið það,“ segir Karó.

Lagið Silhouette hefur vakið mikla athygli og er komið með yfir sjötíu þúsund spilanir á Spotify. Karó, sem heitir fullu nafni Karólína Jóhannsdóttir, kom fram á sjónarsviðið á síðasta ári þegar hún sigraði í Söngvakeppni framhaldsskólanna.

Hún kemur fram á Sónar annað kvöld. „Sónar leggst ótrúlega vel í mig. Ég hef hvorki spilað né farið á hátíðina áður þannig að þetta verður mögnuð reynsla. Ég er að spila í Norðurljósum klukkan 20.00 annað kvöld sem er frábær staður og stund og Logi, Arnar Ingi og Þorbjörg Roach spila með mér og verða mér til halds og trausts. Síðan verður líka svona „visual“ sýning sem Hlynur Snær skapaði. Ég held að þetta verði frekar brjálað, þó ég segi sjálf frá,“ útskýrir Karó. Hún ætlar jafnframt að frumflytja fjögur ný lög á Sónar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.