Bradley hetja Boston gegn Cleveland | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. febrúar 2016 10:50 Bradley tryggir Boston sigurinn með flautukörfu. vísir/afp
Tíu leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Avery Bradley var hetja Boston Celtics þegar liðið vann eins stigs sigur, 103-104, á Cleveland Cavaliers á útivelli. Bradley tryggði Boston sigurinn með þriggja stiga flautukörfu en liðið var fjórum stigum undir þegar sjö sekúndur voru til leiksloka.Myndband af sigurkörfu Bradley má sjá hér að neðan. Bradley skoraði 14 stig í leiknum en Isiah Thomas var stigahæstur í liði Boston með 22 stig. LeBron James skoraði 30 stig fyrir Cleveland. San Antonio Spurs rúllaði yfir Dallas Mavericks, 90-116, í Texas-slag í nótt. San Antonio var miklu sterkari aðilinn í leiknum og leiddi með 36 stigum í hálfleik, 26-62. Manu Ginobili og Tim Duncan léku ekki með San Antonio í nótt en það breytti engu. Allir leikmenn liðsins komust á blað í leiknum en Kawhi Leonard var þeirra stigahæstur með 23 stig. Þá vann Los Angeles Clippers fimmta sigur sinn í síðustu sex leikjum þegar liðið lagði Orlando Magic að velli, 93-107. Chris Paul var stigahæstur í liði Clippers með 21 stig en hann gaf einnig sex stoðsendingar. JJ Redick og Jamal Crawford komu næstir með 20 stig hvor. Þá átti Lance Stephenson fína innkomu af bekknum, skoraði 13 stig og nýtti öll sex skot sín utan af velli.Úrslitin í nótt: Cleveland 103-104 Boston Dallas 90-116 San Antonio Orlando 93-107 LA Clippers Atlanta 102-96 Indiana Charlotte 95-98 Miami Washington 106-94 Philadelphia Brooklyn 128-119 Sacramento NY Knicks 85-91 Memphis Denver 115-110 Chicago Utah 84-81 MilwaukeeSigurkarfa Bradley Dwayne Wade sýnir gamla takta Flottustu tilþrifin í nótt
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Sjá meira