Sport

Metáhorf á Super Bowl

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Peyton Manning dró fólk að sjónvarpstækjunum á sunnudag.
Peyton Manning dró fólk að sjónvarpstækjunum á sunnudag. vísir/getty
Sögulegt sjónvarpsmet var sett í Bandaríkjunum á sunnudag er Super Bowl 50 fór fram. Aldrei hafa fleiri í sjónvarpssögu Bandaríkjanna horft á einn stakan viðburð.

Alls horfðu 167 milljónir Bandaríkjamanna á leikinn. Bandaríkjametið var 164,1 milljónir og það met var sett á Super Bowl-leiknum árið 2013.

Inn í þessum tölum er þó ekki þeir sem horfðu á netinu eða í gegnum síma þannig að heildartalan er nokkuð hærri.

NFL

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×