Fótbolti

Stórskotasýning hjá Real Madrid gegn Espanyol

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Benzema fagnar fyrsta marki leiksins
Benzema fagnar fyrsta marki leiksins Vísir/getty
Lærisveinar Zinedine Zidane í Real Madrid buðu upp á flugeldasýningu í 6-0 sigri á Espanyol í dag en Cristiano Ronaldo skoraði þrennu í leiknum.

Benzema kom Real Madrid yfir á 7. mínútu leiksins og voru úrslitin aldrei í hættu eftir það. Ronaldo bætti við tveimur mörkum í fyrri hálfleik og James Rodriguez einu með glæsilegu skoti.

Ronaldo fullkomnaði þrennuna tíu mínútum fyrir leikslok en stuttu síðar varð Oscar Duarte fyrir því óláni að skora sjötta mark Real Madrid þegar hann setti boltann í eigið net.

Stuttu síðar var leikurinn flautaður af og fögnuðu leikmenn Real Madrid afar öruggum sigri. Með sigrinum saxaði Real Madrid á nágrannana í Atletico en eru enn fjórum stigum á eftir Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×