Tónlist

Adele á rúntinum: Rappari, Spice Girls aðdáandi og datt nýlega í það þrjú kvöld í röð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Adele og James fóru á kostum.
Adele og James fóru á kostum. vísir
James Corden og heitasta söngkona jarðarinnar Adele fóru á rúntinn um London á dögunum en hann keyrir oft með stjörnum um alla borg í dagskrálið sem nefnist Carpool Karaoke.

Corden stýrir þættinum The Late Late Show vestanhafs en vinirnir keyrðu um saman og sungu nokkur vel valinn lög.

Auðvitað tóku þau lagið Hello og var Adele sérstaklega ánægð með hvað Corden söng lagið vel. Þau áttu nokkuð skemmtilegt samtal um það að Adele hefði dottið í það þrjú kvöld í röð mjög nýlega. Hún er greinilega mikill Spice Girls aðdáandi og tóku einn vel þekktan smell  með Kryddpíunum.

Einnig kom í ljós að Adele er rosalegur rappari en hún tók lagið Monster með Nicki Minaj. Myndbandið frá rúntinum má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.