Sex Pepsi-deildarlið þurfa að spila á meðan Ísland er á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2016 16:25 Gunnleifur Gunnleifsson í leik Blika og FH í Pepsi-deildinni í fyrra. Vísir/Andri Marinó
Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, hefur nú gert opinber drög að leikdögum Pepsi-deildarinnar í sumar en þar kemur fram að helmingur liða Pepsi-deildar karla þurfa að spila leik á meðan Ísland er að spila í riðlakeppni Evrópumótsins. Ísland spilar sinn fyrsta leik á móti Portúgal 14. júní en 15. og 16. júní fara fram leikir hjá þeim liðum sem taka þátt í Evrópukeppnum seinna um sumarið. Eitt liðanna sem spilar milli leikja eitt og tvö hjá íslenska landsliðinu er lið Breiðabliks en markvörður liðsins, Gunnleifur Gunnleifsson, hefur verið í landsliðshópi Íslands. Liðin sem sem þurfa að spila á meðan Ísland er á EM eru ÍBV, Breiðablik, Fjölnir, KR, Valur og FH. Síðasti leikur hjá hinum liðunum sex er sunnudaginn 5. júní og fyrsta umferð eftir EM er 23. og 24.júní. Fyrsta umferð Pepsi-deildarinnar 2016 fer fram 1. maí og síðasta umferðin fer fram 1. október. Sex umferðir munu fara fram í maí og sú sjöunda verður spiluð 5. júní. Það verður ekkert spilað í Pepsi-deild kvenna frá 29. maí til 24. júní en það er bæði vegna Evrópumótsins og landsliðsverkefna en íslenska kvennalandsliðið spilar úti við Skotland 3. júní og heima á móti Makedóníu 7. júní. Það er hægt að sjá drög að leikdögum Pepsi-deildarinnar hér.Leikir í Pepsi-deild karla í kringum leiki Íslands á EM:14. júní Ísland-Portúgal 15. júní ÍBV-Breiðablik 15. júní Fjölnir-KR 16. júní Valur-FH18. júní Ísland-Ungverjaland22. júní Ísland-Austurríki 23. júní Stjarnan-ÍBV 23. júní Breiðablik-Valur 23. júní KR-ÍA 23. júní FH-Fylkir 23. júní Víkingur R.-Víkingur Ó. 23. júní Þróttur R.-Fjölnir
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á meðan að pabbi er formaður mun ég ekki skipta um lið“ Körfubolti Rashford og 32 ára nýliði í fyrsta landsliðshópi Tuchels Enski boltinn Dorgu bað dómarann um að gefa United ekki víti Fótbolti Fimm skíðastökkvarar í bann eftir saumaskandalinn Sport „Kominn tími á konu í Formúlu 1“ Formúla 1 Ánægður með fullkomna fyrirliðann en segir hann þurfa að treysta samherjunum Fótbolti Svona líta öll átta liða úrslitin í Evrópu út Fótbolti „Engin draumastaða“ Handbolti Sir Alex er enn að vinna titla Enski boltinn Van Dijk boðnar átta milljónir á dag í laun Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður FH fer heim til Keflavíkur Lengsta undirbúningstímabilið að klárast Alex Freyr skrópaði á æfingu á Spáni Helena Ósk tryggði Valskonum sæti í undanúrslitunum Þór/KA konur áfram í undanúrslit eftir sigur í Árbænum Tveggja leikja bann fyrir glórulausa tæklingu Fyrirliði Vestra veðjaði á leiki í Bestu deildinni 55 ára Rúnar smurði hann í skeytin með bæði hægri og vinstri Valur fær manninn sem var efstur á óskalistanum Kveður Selfyssinga óvænt: „Það er synd að kveðja á þennan hátt“ Baðst afsökunar á tæklingunni í Garðabænum Skrautlegt mark, glæsimark og allt brjálað í sigri KR „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Sjá meira