Fótbolti

Atletico Madrid styrkti stöðu sína á toppnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Antoine Griezmann gerði tvö mörk í dag.
Antoine Griezmann gerði tvö mörk í dag. vísir/getty
Atletico Madrid vann öruggan sigur á Las Palmas, 3-0, í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Filipe Luis kom gestunum yfir eftir rúmlegar korters leik og var staðan í hálfleik 1-0. Í þeim síðari gerði Antoine Griezmann tvö mörk fyrir Madrid og tryggði liðinu auðveld þrjú stig.

Atletico Madrid er í efsta sæti deildarinnar með 47 stig, fjórum stigum á undan Real Madrid. Barcelona er með 42 stig en á tvo leiki til góða á bæði lið.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×