Fótbolti

Neville stöðvaði Real Madrid

Gary Neville er stjóri Valencia og Phil, til hægri, bróðir hans er í þjálfaraliðinu.
Gary Neville er stjóri Valencia og Phil, til hægri, bróðir hans er í þjálfaraliðinu. Vísir/Getty
Real Madrid tapaði dýrmætum stigum í toppbaráttu spænsku úrvalsdeildarinnar og staða Rafa Benitez, knattspyrnustjóra, veiktist enn í dag er hans menn gerðu 2-2 jafntefli við Valencia á útivelli.

Gary Neville er sem kunnugt er stjóri Valencia sem var óheppið að tryggja sér ekki sigurinn í uppbótartíma leiksins.

Real er í þriðja sæti deildarinnar með 37 stig, fjórum stigum á eftir Atletico Madrid. Barcelona er í öðru sæti með 39 stig en á leik til góða.

Karim Benzema kom Real yfir strax á 16. mínútu eftir góðan undirbúning frá þeim Gareth Bale og Cristiano Ronaldo. En heimamenn fengu vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks er Pepe braut á Andre Gomes. Dani Parejo skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni.

Real Madrid missti svo mann af velli með rautt spjald á 70. mínútu er Króatinn Mateo Kovacic fékk beint rautt spjald fyrir að tveggja fóta tæklingu á Joao Cancelo.

En heimamenn náðu ekki að færa liðsmuninn sér í nyt og Bale virtist hafa tryggt Madrídingum sigurinn þegar hann hann skoraði gott mark með skalla eftir aukaspyrnu Toni Kroos á 82. mínútu.

Valencia gafst þó ekki upp og aðeins mínútu síðar náði liðið að jafna metin eftir frábæra sókn. Rodrigo de Paul átti fyrirgjöf inn í teig, nafni hans Rodrigo skallaði boltann fyrir Paco Alcacer sem skallaði boltann í markið af stuttu færi.

Bæði lið sóttu stíft eftir þetta og fengu tækifæri til að skora. Alvaro Negredo slapp í gegn á þriðju mínútu uppbótartímans fyrir heimamenn en skot hans rataði beint á Kaylor Navas í marki Real Madrid.

Neville varð því að sætta sig við jafntefli gegn Real Madrid en hann er enn að bíða eftir fyrsta sigri sínu sem stjóri Valencia - hann hefur nú gert þrjú jafntefli og tapað einum. Valencia er í tíunda sæti með 23 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×