Fótbolti

Varamaðurinn Partey sá um Levante

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Antonio Griezmann reynir hér að leika á varnarmann Levante í kvöld.
Antonio Griezmann reynir hér að leika á varnarmann Levante í kvöld. Vísir/getty
Atletico Madrid skaust upp í toppsæti spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með 1-0 sigri á Levante á Vicente Calderon í kvöld en leiknum lauk rétt í þessu.

Varamaðurinn Thomas Teye Partey skoraði sigurmark Atletico í leiknum skömmu eftir að hafa komið inná sem varamaður fyrir Jackson Martinez en þetta var fyrsta mark hans fyrir félagið eftir að hafa gengið til liðs við Atletico Madrid frá Almeria.

Náði Atletico því aftur toppsæti spænsku úrvalsdeildarinnar eftir óvænt markalaust jafntefli Barcelona gegn Espanyol fyrr í dag en nágrannar Atletico í Real Madrid geta saxað á forskot Atletico með sigri gegn Valencia annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×