Fyrrum leikmaður Ajax og AC Milan orðinn samherji Emils Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2016 19:00 Urby Emanuelson. Vísir/Getty
Hellas Verona hefur fengið liðstyrk fyrir seinni hluta tímabilsins en liðið samdi við hollenska vinstri bakvörðinn Urby Emanuelson. Urby Emanuelson var laus allra mala og kostar Hellas Verona liðið því ekki neitt. Emil Hallfreðsson og félagar í Hellas Verona eru í neðsta sæti deildarinnar með aðeins 8 stig í 17 leikjum. Liðið er átta stigum frá öruggu sæti og þarf því að fara að safna stigum ætli liðið sér ekki að fall úr A-deildinni. Urby Emanuelson lék bæði með AS Roma og Atalanta á síðasta tímabili. Gerði eins árs samning við Roma fyrir tímabilið en fór síðan til Atalanta í janúar. Emanuelson hafði ekkert spilað á fyrri hluta þessa tímabils en hefur verið að æfa með AC Milan. Hann var að reyna að finna sér nýtt lið og Luigi Delneri, nýr þjálfari Verona-liðsins, ákvað að veðja á hann. Urby Emanuelson er 29 ára gamall og á að baki 17 landsleiki fyrir Holland. Hann spilaði 173 leiki fyrir Ajax á árunum 2004 til 2011 og 75 leiki fyrir AC Milan frá 2011 til 2014. Emanuelson getur spilað fleiri stöður á vellinum en vinstri bakvörð en hann hefur einnig spilað framar á vellinum og þá sérstaklega þegar hann lék fyrir Massimiliano Allegri hjá AC Milan.
Ítalski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Í beinni: Southampton - Liverpool | Rauði herinn marserar áfram Enski boltinn Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Fleiri fréttir Í beinni: Southampton - Liverpool | Rauði herinn marserar áfram Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Sjá meira