Íslenski boltinn

Frumsýning á nýjustu leikmönnum Stjörnunnar í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Á HM í sumar Poliana lék með Brasilíu á HM í Kanada.
Á HM í sumar Poliana lék með Brasilíu á HM í Kanada. Vísir/Getty
Valur tekur á móti Stjörnunni í Pepsi-deild kvenna klukkan 19.15 í kvöld en leikið er á æfingasvæði Vals á Hlíðarenda þar sem Valsstelpurnar vilja ekki spila á Laugardalsvelli eins og karlarnir.

Stjörnuliðið fékk sér fjóra nýja útlendinga í glugganum til að undirbúa sig fyrir mikið leikjaálag á næstunni og ein af þeim, brasilíska landsliðskonan Poliana, gæti spilað sinn fyrsta leik í kvöld.

Poliana spilaði með Brasilíu á Heimsmeistaramótinu í sumar og var einnig í sigurliðinu á Ameríkuleikunum í dögunum en hún á að baki 34 leiki fyrir brasilíska landsliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×