Menning

Fræðst og sungið um rómantíkina

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sveinn Enok ætlar meðal annars inn í Fríkirkjuna og syngja þar Tvær stjörnur eftir Megas.
Sveinn Enok ætlar meðal annars inn í Fríkirkjuna og syngja þar Tvær stjörnur eftir Megas. Vísir/Andri Marinó
„Ég ætla að taka lagið á vel völdum stöðum og fá fólk til að taka undir, ásamt Gunnari Ó. Kvaran harmóníkuleikara,“ segir söngvarinn Sveinn Enok Jóhannsson sem ætlar að syngja dægurlög tengd húsum sem skoðuð verða í kvöldgöngu um miðborgina annað kvöld. Gönguna leiðir Helga Maureen Gylfadóttir sagnfræðingur og hún kryddar gönguna með sögulegum fróðleik um revíur og rómantík.

Sveinn er klassískur söngvari en nú verður hann á léttum nótum og kveðst verða með einhver textablöð til að dreifa meðal þátttakenda í göngunni. Hann nefnir lög eins og Vorkvöld í Reykjavík, Blátt lítið blóm eitt er, Ó borg mín borg, Ennþá brennur mér í muna og Það er draumur að vera með dáta.

Gangan er hluti af kvöldgöngum menningarstofnana Reykjavíkurborgar og er lagt upp í hana frá Grófarhúsi, Tryggvagötu 15 klukkan 20.

Gert er ráð fyrir að gangan taki um 90 mínútur.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.-






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.