Gunnar í besta formi lífsins: Ég er tilbúinn Henry Birgir Gunnarsson í Las Vegas skrifar 11. júlí 2015 10:00 Gunnar vill koma sér aftur á sigurbraut eftir tapið gegn Rick Story og fær loks tækifæri til þess í Las Vegas í kvöld.fréttablaðið/getty „
Ég er löngu tilbúinn og er bara að bíða eftir því að komast í búrið. Síðasta vikan fyrir bardaga er leiðinlegust. Þá er maður nánast hættur að æfa og er bara að bíða,“ segir Gunnar Nelson en hann getur ekki beðið eftir að þreyta frumraun sína í Bandaríkjunum. Í nótt mun hann mæta heimamanninum Brandon Thatch á stærsta bardagakvöldi í sögu UFC. Gunnar tapaði síðasta bardaga sínum fyrir Rick Story og lærði af því. Hann er búinn að æfa gríðarlega vel fyrir þennan bardaga. „Æfingabúðirnar voru góðar. Gott að fara til Mexíkó og vera hátt uppi. Svo þegar ég kem til Vegas verður allt auðveldara. Svo er gott að hafa verið hér í nokkrar vikur og aðlagast loftslaginu. Þetta er orðið heimilislegt,“ segir Gunnar og hann fer ekkert í grafgötur með að hafa aldrei verið í betra formi um ævina. „Ég er í virkilega góðu formi. Það er ekki spurning að ég er í mínu besta formi frá upphafi.“ Líkt og venjulega dró upprunalegur andstæðingur Gunnars, John Hathaway, sig úr keppni. Það hreyfir ekki mikið við okkar manni. „Það hefur alltaf verið þannig. Ég er orðinn vel vanur því og það hefur lítil áhrif. Thatch er sterkari á pappírnum og líka stærra nafn.“ Thatch er mjög kröftugur bardagamaður og mikill rotari. Hann segist ætla að rota Gunnar í annarri lotu. Gunnar ætlar að sjálfsögðu ekki að leyfa honum að komast upp með það. „Ég er ekki viss um að hann mæti bilaður og hjóli strax í mig. Hann er hræddur við að fara í gólfið með mér og mun því örugglega passa sig. Ef hann veður inn eru líkur á að hann verði tekinn niður. Ég er búinn að æfa að berjast standandi mikið. Ég er tilbúinn.“ Þjálfari Gunnars, John Kavanagh, er mjög ánægður með Gunnar sem hann segir vera með breytt viðhorf. Gunnar segist aðeins hafa misst áhugann en það sé komið aftur. Skal engan undra því hann er að fá frábært tækifæri með því að keppa á þessu risakvöldi. „Þetta verður klikkað kvöld. Ég get ekki beðið. Þetta er mikill heiður. Ég finn ekkert mikið fyrir pressunni. Þessi vika hefur verið ótrúlega ljúf. Við erum uppi í þessu fína húsi, MacMansion, og það er svo mikill áhugi á tveimur stærstu bardögunum að við hinir höfum fengið að fljóta. Það hentar mér mjög vel,“ segir Gunnar og brosir. Þó svo hann sé ekki vanur að ýta sér í sviðsljósið þá gefur hann af sér í öllum viðtölum og heillar erlenda blaðamenn venjulega upp úr skónum. Gunnar hefur ekki áhuga á því að bardaginn fari alla leið og dómarar þurfi að skera úr um úrslit. Hann ætlar að klára bardagann. „Þessi bardagi gæti farið á marga vegu. Ég fer inn og verð tilbúinn að takast á við hvað sem er. Ef við förum í gólfið þá finnst mér líklegt að ég klári hann þokkalega snemma. Svo getur verið að við stöndum um tíma. Þetta kemur í ljós. Það getur líka vel verið að ég slái hann bara niður. Ég ætla alltaf að klára mína bardaga. Ég vil ekki að dómarar ákveði þetta,“ segir Gunnar ákveðinn en finnst honum hann þurfa að svara fyrir sig eftir síðasta bardaga? „Mér finnst alltaf að ég þurfi að gera eins vel og ég get. Bæði fyrir mig og aðra Til þess er ég að þessu. Ég vil alltaf klára mína bardaga og gera það almennilega.“Vísir er í Las Vegas og fylgir Gunnari Nelson eftir alla vikuna. Ekki missa af neinu. Like-aðu okkur á Facebook, eltu okkur á Twitter og skyggnstu bakvið tjöldin á Snapchat (sport365). Tryggðu þér svo áskrift á 365.is.
MMA Mest lesið „Hér er allt mögulegt“ Fótbolti Leikhús draumanna stóð undir nafni í ótrúlegustu endurkomu síðari ára Fótbolti „Maður er náttúrlega bara í pínu sjokki“ Sport Lagði egóið til hliðar fyrir liðið Körfubolti Dramatík á Hlíðarenda Handbolti Van Dijk fær 68 milljónir á viku Enski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Íslenski boltinn Móðir Eyglóar afhenti henni sögulegt EM-gull Sport Eygló Fanndal Evrópumeistari Sport Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Handbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Umspilið í NBA, 1. deild kvenna í körfubolta og margt fleira Lagði egóið til hliðar fyrir liðið „Hér er allt mögulegt“ Dramatík á Hlíðarenda Van Dijk fær 68 milljónir á viku Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram „Maður er náttúrlega bara í pínu sjokki“ Leikhús draumanna stóð undir nafni í ótrúlegustu endurkomu síðari ára Solanke skaut Tottenham í undanúrslit Chelsea í undanúrslit þrátt fyrir tap Hálf úrvalsdeildin á eftir Delap Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Albert og félagar í undanúrslit Slæmur skellur á móti nágrönnunum Móðir Eyglóar afhenti henni sögulegt EM-gull Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Eygló Fanndal Evrópumeistari Sönderjyske vann Íslendingaslaginn Rekinn út af eftir 36 sekúndur Neymar fór grátandi af velli Sky Sports: Ancelotti hættir með Real Madrid eftir bikarúrslitaleikinn „Ég er alltaf stressuð“ Tevez vill að Ronaldo og Messi spili saman í kveðjuleiknum hans Fimmtán ára og skoraði í fyrsta byrjunarliðsleiknum í efstu deild Óvenjuleg taktík Real Madrid á móti Arsenal fær falleinkunn frá Ferdinand Vonast til að gera íslensku þjóðina stolta Van Dijk skrifaði undir nýjan samning við Liverpool Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Sjáðu Arsenal slá út Real Madrid, vítið sem dæmt og vítið sem var dæmt af Sjá meira