Menning

Verkin bera með sér andblæ vorsins

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Flytjendur Hildigunnur, Ingunn Hildur, Hanna Dóra og Ármann en Hávarð vantar á myndina.
Flytjendur Hildigunnur, Ingunn Hildur, Hanna Dóra og Ármann en Hávarð vantar á myndina.
„Verkin eru öll tengd vorinu sem við höldum öll í vonina um að sé að koma og þau eru hvert öðru fallegra.

Flutningurinn er líka dálítið grand,“ segir Hanna Dóra Sturludóttir söngkona um söng- og kammertónleikana Vor í lofti í Hafnarborg í Hafnarfirði í kvöld klukkan 20.

Þar kemur hún fram ásamt félögum úr Camerarctica, þeim Ármanni Helgasyni klarinettuleikara, Hildigunni Halldórsdóttur fiðluleikara, Hávarði Tryggvasyni kontrabassaleikara og Ingunni Hildi Hauksdóttur píanóleikara.

Lögin eru eftir tónskáld rómantíska tímabilsins, þá Spohr og Brahms. Einnig hljóma Sumarskuggar eftir Elínu Gunnlaugsdóttur, Tríó eftir Katsjatúrían fyrir klarinettu, fiðlu og píanó og himnasöngurinn Wir geniessen die himmlischen Freuden úr fjórðu sinfóníu Mahlers.

Í lokin flytur hópurinn nokkur af ljóðum Jónasar Hallgrímssonar við tónlist Atla Heimis Sveinssonar, svo sem Dalvísu, Heiðlóarvísu og Vorvísu.

Tónleikarnir eru liður í hátíðinni Björtum dögum sem hefst í dag í Hafnarfirði og stendur fram á sunnudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.