Menning

Bókmenntir og fræðsla við hvert fótmál

Magnús Guðmundsson skrifar
Ljósmynd Sveinn Þórðarson, frá Blesugróf 1972.
Ljósmynd Sveinn Þórðarson, frá Blesugróf 1972.
Bókmenntamerkingar á vegum bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur setja í vaxandi mæli skemmtilegan svip á bæinn. Með þeim gefst fólki skemmtilegt tækifæri til þess að kynnast bókmennta- og menningarlegri sögu síns nærumhverfis, fræðast um líf, menningu, bókmenntir og sögu liðinna daga.

Næstkomandi laugardag kl. 14 verður afhjúpuð ný bókmenntamerking við Blesugrófina við göngustíginn fyrir neðan Stjörnugróf í Fossvogi. Merkingin er til heiðurs Tryggva Emilssyni rithöfundi og verkamanni sem var á meðal fyrstu íbúa hverfisins.

Tryggvi Emilsson
Æviminningar Tryggva sem komu út á árunum 1976 til 1979 vöktu á sínum tíma mikla athygli, enda er þar að finna einstaka lýsingu á breytingum frá gamla bændasamfélaginu til nútímans. Tryggvi var jafnframt einn af frumbyggjum í Blesugrófinni á sínum tíma og sá eini sem lýsti uppbyggingu og mannlífi þess hverfis með einstökum hætti og hafa verk Tryggva mikið sögulegt og bókmenntalegt gildi.

Forlagið hefur staðið fyrir endurútgáfu á verkum Tryggva. Áður hafa komið út Fátækt fólk og Baráttan um brauðið sem voru á sínum tíma tilnefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Fyrir sunnan er síðasta bókin sem nú er endurútgefin og verður lesið upp úr henni og litið til fortíðar með ættingjum Tryggva við afhjúpun merkingarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.