Skoðun

Mikilvægi skaðaminnkandi þjónustu og heilsuverndar

Kristín S. Hjálmtýsdóttir skrifar
Í Reykjavík er starfrækt fjölmennasta deild Rauða krossins á Íslandi. Starfsemi hennar er hlekkur í stórri keðju deilda og landsfélaga sem starfa um allan heim. Rauði krossinn er mannúðarhreyfing sem vinnur að því að skapa betra samfélag. Þannig vinnur deildin að mörgum uppbyggilegum verkefnum, sem oft og tíðum eru framkvæmd í nánu samstarfi við bæði ríki og borg.

Markmið að auka lífsgæði

Á vettvangi tveggja stórra verkefna deildarinnar, í Konukoti og hjá Frú Ragnheiði, er unnið eftir skaðaminnkandi hugmyndafræði sem beinist að því að draga úr eða lágmarka heilsufarslegan, félagslegan og fjárhagslegan skaða sem vímuefnaneysla veldur einstaklingum og samfélögum. Í skaðaminnkandi nálgun er sjónum beint að afleiðingum og áhrifum fíknihegðunar en ekki á notkunina sem slíka. Markmið skaðaminnkunar er fyrst og fremst að auka lífsgæði neytenda. Bæði verkefnin byggja á óeigingjörnu sjálfboðastarfi fjölbreytts hóps einstaklinga.

Heilsuvernd án fordóma og kvaða

Frú Ragnheiður hefur þann tilgang að ná til jaðarhópa samfélagsins, til dæmis útigangsfólks, heimilislausra og fíkla, og bjóða þeim skaðaminnkandi þjónustu og almenna heilsuvernd, án fordóma eða kvaða. Verkefnið er stutt af velferðarsviði Reykjavíkurborgar og velferðarráðuneytinu, en sá stuðningur gerir okkur kleift að halda úti þessu mikilvæga starfi. Konukot er næturathvarf fyrir heimilislausar konur sem eiga hvergi höfði sínu að halla og þurfa stað til að sofa á. Flestar þeirra stríða við vandamál tengd neyslu áfengis og/eða fíkniefna. Konukot er einnig samstarfsverkefni Rauða krossins í Reykjavík og Reykjavíkurborgar.

Stuðningur almennings mikilvægur

Í verkefnum sem þessum er stuðningur almennings enn fremur afar mikilvægur og finnum við fyrir því að mikill velvilji ríkir í samfélaginu í garð þess starfs sem unnið er hjá Rauða krossinum. Ég vil nýta tækifærið og vekja athygli á því að í dag, miðvikudaginn 15. apríl, standa sjálfboðaliðar Rauða krossins í Reykjavík fyrir tónleikum á Kexi Hosteli til styrktar þessum umfangsmiklu skaðaminnkunarverkefnum. Dagskráin er ekki af verri endanum og kemur þar fjöldi frábærra listamanna fram og gefur vinnu sína fyrir málstaðinn. Ég hvet alla til að mæta, en nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðu Rauða krossins.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×