Fótbolti

Stjörnustríðið mikla: MSN gegn BBC

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
MSN eða Lionel Messi, Neymar og Luis Suarez eru búnir að skora saman 29 mörk á árinu 2015.
MSN eða Lionel Messi, Neymar og Luis Suarez eru búnir að skora saman 29 mörk á árinu 2015. Fréttablaðið/AFP
Það er ekki hægt að finna sterkari sóknarþríeyki í fótboltanum en hjá spænsku liðunum Barcelona og Real Madrid og það verður því algjör knattspyrnuveisla þegar liðin mætast í El Clasico um helgina.

Þarna fær knattspyrnuáhugafólk tækifæri til að sjá BBC (Karim Benzema, Gareth Bale, Cristiano Ronaldo) á móti MSN (Lionel Messi, Luis Suarez, Neymar) í leik sem er eins mikilvægur og þeir geta orðið. Það er ekki bara heiðurinn undir heldur einnig spænski meistaratitillinn.

Barcelona er á heimavelli og hefur eins stigs forskot á Real Madrid á toppi deildarinnar. Hér er því á ferðinni einn mest spennandi El Clasico-leikur síðustu ára.

Real Madrid vann fyrri leikinn 3-1 á Bernabéu þrátt fyrir að Barcelona kæmist í 1-0 í upphafi leiks. Sá leikur snérist þó aðallega um það að Luis Suárez var að spila sinn fyrsta leik með Barcelona eftir leikbannið og Úrúgvæinn var alls ekki kominn í takt við hina tvo. Í raun var það Real Madrid sem réð ríkjum á Spáni fyrir jól, bæði í stigasöfnun og í markaskorun BBC-þríeykisins. BBC skoraði þrettán mörkum meira en MSN fyrir áramót og Real var með fjögurra stiga forskot á Börsunga yfir jólin.

Enginn var betri en Cristiano Ronaldo sem skoraði 25 mörk í fyrstu fjórtán deildarleikjum tímabilsins. Með nýkrýndan besta fótboltamann í heimi leit út fyrir að Evrópumeistarar Real Madrid væru óstöðvandi.

Lionel Messi og félagar í MSN-þríeyki Barcelona voru hins vegar ekki búnir að leggja árar í bát. Messi hefur skipt yfir í túrbó-gírinn á árinu 2014 og þeir Messi, Neymar og Suárez virðast ná betur saman með hverjum leik.

BBC-þríeykið hjá Real Madrid: Benzema, Bale og Ronaldo.Vísir/Getty
Á sama tíma og Barcelona fann aftur taktinn lenti Real Madrid hins vegar í vandræðum, Gullboltinn virtist þyngja Cristiano Ronaldo sem hefur bara verið venjulegur leikmaður síðan hann var kosinn sá besti í heimi annað árið í röð. Kannski bara orðinn svolítið saddur á meðan aðalkeppinauturinn, Lionel Messi, spilar eins maður sem er glorhungraður í að komast aftur í hásæti fótboltaheimsins.

Lionel Messi hefur skoraði 17 mörk í fyrstu 11 leikjum ársins og MSN-gengið er með fjórtán fleiri mörk en BBC-þríeykið það sem af er á árinu 2015. Góð spilamennska Börsunga hefur skilað þeim í toppsæti deildarinnar.

Barcelona getur náð fjögurra stiga forskoti með sigri á Real Madrid klukkan 20.00 á sunnudagskvöldið. Real-liðið getur með sigri getur liðið tekið aftur frumkvæðið fyrir síðustu tíu umferðir tímabilsins.

Börsungar hafa unnið sig til baka upp í toppsætið og þar er ekki á dagskrá að tapa stigum á heimavelli á móti erkióvinunum sem hafa ekki unnið tvo leiki í röð á móti Barca síðan fyrir íslenska bankahrunið.

Það er von á knattspyrnuveislu á Nývangi því lið með sóknarþríeyki eins og Barcelona og Real Madrid eru ekki að fara að leggjast í vörn. BBC og MSN vilja hafa boltann og það sem oftast. Fyrir vikið verður enginn svikinn af því að skella sér í sófann og fylgjast með beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×