Menning

Hæ! Tröllum á meðan við tórum og Ave María

Graduale Nobili Í hinu undurfagra verki Ave Maria eftir Gustav Holst munu kórfélagar umlykja áheyrendur.
Graduale Nobili Í hinu undurfagra verki Ave Maria eftir Gustav Holst munu kórfélagar umlykja áheyrendur.
Graduale Nobili, sem skipaður er líflegum stúlkum og stjórnað er af Jóni Stefánssyni organista, verður með fjölbreytta dagskrá á tónleikum sínum í Langholtskirkju á morgun, sunnudaginn 22. mars, klukkan 17. Síðasta ár hélt kórinn tónleika sem vöktu mikla athygli og gerðu lukku. Þá samanstóð efnisskráin af karlakórslögum. Dömurnar hafa ekki sagt skilið við þau því nokkur þessara laga eru með á dagskránni, lög eins og Hæ! Tröllum á meðan við tórum, Einu sinni svanur fagur og Skín við sólu Skagafjörður. Á seinni hluta tónleikanna verða meðal annars sex verk tileinkuð Maríu guðsmóður en boðunardagur Maríu er næsta sunnudag. Má þar nefna Maríuljóð eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Maríukvæði eftir Atla Heimi Sveinsson, Salve Regina eftir Kocsár Miklós og hið undurfagra Ave Maria eftir Gustav Holst þar sem kórfélagar umlykja áheyrendur. Einnig verður frumflutt Magnificat sem breska tónskáldið Christopher Field samdi fyrir kórinn. - gun





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.