Menning

Stúlka með fugl og síðasta veggklæðið

Magnús Guðmundsson skrifar
Síðasta veggklæði Ásgerðar er frá 2001.
Síðasta veggklæði Ásgerðar er frá 2001.
Ásgerður Ester Búadóttir fæddist í Borgarnesi 4. desember 1920 en ólst upp í Reykjavík. Hún hóf nám í Handíða- og myndlistarskólanum árið 1942 og stundaði framhaldsnám við Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn árin 1946-49 og lagði einkum stund á málaralist. Á námsárunum kynntist hún þó einnig listvefnaði og þá kviknaði áhugi hennar á því listformi.

Eftir námið flutti hún með sér vefstól heim og fór að vinna með listvefnað sem hefur haldið nafni hennar á lofti allar götur síðan, en Ásgerður var án efa markverðasti veflistamaður þjóðarinnar á 20. öld.

Árið 1956 vann hún til gullverðlauna á alþjóðlegu lista- og handverkssýningunni í München fyrir veggklæðið Stúlka með fugl. Verðlaunin gáfu henni byr í seglin og í kjölfarið hélt hún fyrstu sýningarnar á verkum sínum.

Elínbjört Jónsdóttir er sýningarstjóri sýningarinnar í Gallerí Fold. „Við erum að sýna fimm burðarverk frá ferli Ásgerðar, það elsta frá 1965 og svo einnig það yngsta frá 2001. Samhliða sýnum við einnig sýnishorn af skissum og vef á þekktum verkum svo að fólk geti fengið hugmynd um heildina og sýn á vinnuferli listamannsins.“ Verk Ásgerðar má finna á söfnum hérlendis, á Norðurlöndunum og í Bandaríkjunum, auk þess sem þau prýða ýmsar opinberar stofnanir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.