Menning

Málar í anda hins hollenska Vermeers

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Gerdine Vermeer er af ætt hins heimsfræga málara Johannes Vermeer.
Gerdine Vermeer er af ætt hins heimsfræga málara Johannes Vermeer.
Akurnesingurinn og listmálarinn Bjarni Skúli Ketilsson – Baski, sýnir í Safnaskálanum á Akranesi.

Hann býr í Deventer í Hollandi ásamt konu og börnum en skrapp heim til að halda námskeið í myndlist og einnig til að sýna verk sín. Myndirnar sýna daglegt líf á Akranesi og í sveitunum í kring en einnig í Deventer í Hollandi.

Þetta er önnur sýning Bjarna Skúla á Akranesi. Sú fyrri var Minningar á striga árið 2012 á 70 afmæli Akraneskaupstaðar og samhliða gaf hann út bókina Akranes heima við hafið.

Fyrirsætan á myndinni sem hér fylgir með er söngkona í hljómsveit listamannsins Dear Ellinor í Hollandi. Hún er af ætt hins heimsfræga málara Johannes Vermeer sem málaði meðal annars hið fræga málverk Mjólkurstúlkuna.



Baski ákvað að fá hana í sams konar uppstillingu á vinnustofu sinni til að geta málað af henni mynd í anda Vermeers, frænda hennar.

Hér er hún með sinn uppáhaldsdrykk og því heitir verkið Viskýstúlkan!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.