Menning

Karlmenn og tilfinningar

Magnús Guðmundsson skrifar
Rakel McMahon birtir verk um karlmennsku á sýningu í Hverfisgalleríi sem hún opnar á morgun.
Rakel McMahon birtir verk um karlmennsku á sýningu í Hverfisgalleríi sem hún opnar á morgun. Fréttablaðið/Anton
Fyrsta sýning Hverfisgallerísins eftir sameiningu við gallerí Þoku verður opnuð á morgun, 7. febrúar klukkan 17 til 19 þegar Rakel McMahon ríður á vaðið með sýninguna View of Motivation sem er röð málverka unninna á pappír.

Í verkum sínum tekst Rakel McMahon oft á við það hvernig karlmenn og tilfinningar virðast oft ekki eiga samleið. En á fótboltavellinum gildi aðrar reglur um tjáningu karlmanna á tilfinningum sínum.

Fótboltalið er hópur ellefu karlmanna sem eru ímynd karlmennskunnar; manna sem samt sem áður hika ekki við að sýna sterkar tilfinningar og hlýhug hver til annars á leikvellinum. Þar má sjá kossa, faðmlög, flengingar, hopp hvers á annan ásamt ágengni og öskrum.

Völlurinn er sannkallaður hrærigrautur tilfinninga. Leikmenn fá tækifæri til að vera nánir öðrum karlmönnum og sýna tilfinningar sínar frammi fyrir stórum áhorfendahópi án þess að vera dæmdir.

Í verkum sínum gagnrýnir Rakel McMahon staðalímyndir karla á gamansaman hátt með því að leggja áherslu á tengingu milli samkynhneigðar og einlægrar væntumþykju meðal karlmanna sem brýst út í frekar fáránlegu sögusviði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.