Menning

Vinnusmiðjur í anda Gerðar Helgadóttur

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/GVA
„Við erum að setja upp fræðslu- og upplifunarsýningu sem verður opnuð á laugardaginn klukkan 15,“ segir Guðrún Benónýsdóttir listakona sem skipuleggur Stúdíó Gerðar í samstarfi við starfsfólk safnsins.

„Við notum annan sal safnsins til að setja upp vinnustofuhugmynd Gerðar Helgadóttur (1928-1975) og stilla upp verkum hennar þar, fjölbreyttum skúlptúrum úr járni, gifsi og bronsi. Salnum er skipt upp í herbergi eins og á arkitektateikningu, með línum í gólfinu.“

Guðrún ætlar að leiða opnar vinnusmiðjur fyrir ólíka aldurshópa meðan á sýningunni stendur.

Gerður í vinnustofu sinni á sínum tíma.
„Við ætlum að virkja sköpunarkraft og ímyndunarafl þátttakenda, til dæmis skólakrakka sem koma í heimsókn og vinna verkefni sem tengjast myndlist Gerðar að einhverju leyti,“ segir Guðrún og hvetur fjölskyldufólk einnig til að koma í heimsókn á eigin vegum og njóta skapandi samverustunda.

Sýningin Andvari eftir Valgerði Hafstað (1930-2011) verður líka opnuð í Gerðarsafni á sama tíma. Valgerður nam myndlist í Reykjavík, Kaupmannahöfn og París, þar lærði hún einnig mósaíkgerð samhliða málaralistinni.

Verkin á sýningunni spanna allan listamannsferil Valgerðar, unnin í gvass, akrýl og olíu ásamt mósaíkmyndum. Verkin eru á mörkum þess hlutbundna og óhlutbundna, þar sem oft á tíðum má greina óljóst landslagsmótíf eða innanstokksmuni sem hún virðist hafa umbreytt á einn eða annan hátt.

Fyrsta myndlistarsýning Valgerðar var samsýning hennar og Gerðar Helgadóttur árið 1957 í Galerie La Rouge í París.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.