Menning

Hátíðahljómar við áramót

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þeir félagar hafa leikið fyrir fullu húsi í Hallgrímskirkju á gamlárskvöld allt frá vígslu Klais-orgelsins árið 1992.
Þeir félagar hafa leikið fyrir fullu húsi í Hallgrímskirkju á gamlárskvöld allt frá vígslu Klais-orgelsins árið 1992.
Trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson, Eggert Pálsson pákuleikari og Björn Steinar Sólbergsson, organisti Hallgrímskirkju, flytja hátíðaverk í Hallgrímskirkju síðdegis í dag og byrja klukkan 17.

Flest verkin eiga uppruna sinn á barokktímabilinu, að sögn Ingu Rósar Ingólfsdóttur hjá Listvinafélagi Hallgrímskirkju sem stendur fyrir tónleikunum. Hún segir lúðraþyt og trumbuslátt hafa um aldir tengst hátíðum.

?Á efnisskránni eru meðal annars forleikur að Te Deum eftir Charpentier, Björn Steinar leikur hina þekktu Tokkötu í d-moll eftir Bach og ekki má gleyma hinu fræga Adagio eftir Albinoni sem Ítalinn Giazotto umritaði,? lýsir hún.

Inga Rósa segir þetta vera í 23. sinn sem Listvinafélag Hallgrímskirkju býður upp á sambærilega tónleika. ?Áramótastemningin byrjar með hátíðarhljómum þeirra félaga. Þeir hafa leikið fyrir fullu húsi hér í kirkjunni á gamlárskvöld allt frá vígslu Klais-orgelsins árið 1992. ?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.