Fótbolti

Neville bíður eftir sínum fyrsta deildarsigri hjá Valencia

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Neville þarf að snúa gengi Valencia við á nýju ári.
Neville þarf að snúa gengi Valencia við á nýju ári. vísir/getty
Gary Neville bíður enn eftir sínum fyrsta deildarsigri sem knattspyrnustjóri Valencia en liðið beið lægri hlut, 1-0, fyrir Villarreal í dag. Þetta var síðasti leikur ársins í spænsku úrvalsdeildinni.

Bruno skoraði eina mark leiksins á 64. mínútu. Villarreal hefur unnið fjóra leiki í röð og er í góðum málum í 4. sæti spænsku deildarinnar.

Það gengur ekki jafnvel hjá Valencia sem er í 10. sæti deildarinnar og hefur ekki unnið leik síðan 7. nóvember.

Neville tók við Valencia í byrjun mánaðarins en liðið hefur aðeins unnið einn leik af fimm undir hans stjórn; bikarleik gegn C-deildarliði Barakaldo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×