Fótbolti

Eiður Smári: Að spila með Messi er eins og að spila með Maradona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi og Thierry Henry fylgjast með Eiði Smára lyfta Meistaradeildarbikarnum.
Lionel Messi og Thierry Henry fylgjast með Eiði Smára lyfta Meistaradeildarbikarnum. Vísir/AFP
Eiður Smári Guðjohnsen fór yfir ferilinn í viðtali í Íþróttalífinu á RÚV í gær og þar sagði hann frá því hverjir eru þrír bestu leikmennirnir sem hann hefur spilað með á löngum og farsælum ferli.

Eiður Smári telur að Brasilíumennirnir Ronaldo og Ronaldinho og svo Argentínumaðurinn Lionel Messi séu þeir bestu sem hann hafi spilað með en einn stendur þó upp úr hjá honum.

„Það er bara einn Messi. Ég held að þetta sé eins og að hafa spilað með Maradona á sínum tíma. Það er ekkert sem hann getur ekki gert," sagði Eiður Smári í viðtalinu við Eddu Sif Pálsdóttur.

„Það voru allar væntingar gerðar til hans að hann yrði bestur í heimi og svo varð hann bara bestur í heimi. Ég er búin að fylgjast með því hvernig hann tók það hlutverk eins og það væri sjálfsagt. Hann var fæddur í það að vera bestur í heimi í fótbolta," sagði Eiður Smári um Lionel Messi.

Eiður Smári og Messi spiluðu saman í þrjú tímabil með Barcelona eða frá 2006 til 2009. Messi skoraði 17 og 16 mörk í öllum keppni á fyrstu tveimur tímabilunum en skoraði síðan 38 mörk á því þriðja þegar hann og Eiður Smári unnu saman þrennuna, Meistaradeildina, spænsku deildina og spænska bikarinn.

Eiður Smári spilaði með Ronaldo hjá hollenska liðinu PSC Eindhoven og með Ronaldinho á fyrstu tveimur tímabilum sínum með Barcelona.  Ronaldinho var tvisvar kosinn bestur í heimi (2004 og 2005),  Ronaldo var þrisvar kosinn bestur í heimi (1996, 1997 og 2002) en Lionel Messi hefur fjórum sinnum verið kosinn besti knattspyrnumaður heims (2009, 2010, 2011 og 2012).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×