Matur

Karamellubomba Evu Laufeyjar

visir.is/evalaufey
Saltkaramellubomba

Súkkulaðibotnar

3 bollar hveiti (1 bolli = 2,5 dl)

2 bollar sykur

3 egg

2 bollar AB mjólk

1 bolli bragðlítil olía (ekki nota ólífuolíu)

5-6 msk. kakó

2 tsk. Lyftiduft

1 tsk. Matarsódi

2 tsk. Vanillu exctract eða vanillusykur.

Aðferð:

Hitið ofninn í 180°C (blástur). Blandið öllum hráefnum saman og hrærið í nokkrar mínútur eða þar til deigið er orðið silkimjúkt. Smyrjið tvö lausbotna form og skiptið deiginu niður í formin. Bakið við 180°C í 20 – 25 mínútur. Tíminn fer auðvitað eftir ofnum, eins og alltaf. Gott er að athuga baksturinn með því að stinga prjóni í kökuna, prjóninn á að koma hreinn út og þá er kakan klár. Leyfið botnunum að kólna alveg áður en þið setjið á þá krem.

Saltkaramellukrem

300 g smjör, við stofuhita

500 g flórsykur

4 msk karamellusósa (sjá uppskrift hér að neðan)

1 - 2 tsk vanilla extract eða sykur

1 - 2 msk rjómi eða mjólk

Aðferð:

Það er mikilvægt að gefa sér tíma fyrir þetta krem. Þeytið saman smjör og flórsykur í 5 - 6 mínútur, stoppið tvisvar sinnum og skafið meðfram hliðum.Næsta skref er að bæta vanillu og rjóma/mjólk. Ég vil að kremið sé mjög mjúkt og þess vegna finnst mér frábært að nota smá rjóma en það er auðvitað hægt að nota mjólk líka. Þeytið kremið í 4 mínútur til viðbótar eða þar til þið eruð ánægð með kremið. Smyrjið kreminu á milli botnanna og yfir alla kökuna. Setjið kökuna í kæli eða inn í frysti í svona klukkustund áður en þið hellið karamellusósunni yfir, en með því að gera það þá bráðnar kremið ekki. 

Söltuð karamellusósa

Hráefni:

200 g sykur

2 msk smjör

½ - 1 dl rjómi

½ tsk sjávarsalt

Aðferð: Setjið sykurinn á pönnu og bræðið hann við vægan hita. Gott er að hafa ekki of háan hita og fara hægt af stað. Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er allur bráðinn og bætið smjörinu saman við og hrærið vel. Hellið rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er þykk og fín. Í lokin bætið þið saltinu saman við. Leyfið sósunni að kólna alveg áður en þið hellið henni yfir kökuna.

Skreytið kökuna með poppkorni með saltaðri karamellu, ég blandaði 1 msk af saltri karamellu við smávegis af poppkorni.

Njótið vel. 

 

 


Tengdar fréttir

Ómótstæðilegur graflax

Eva Laufey Hermannsdóttir gefur uppskrift að heimagerðum graflaxi og sósu.

Ris a la Mande að hætti Evu

Rjómalagaður jólagrautur með kirsuberjasósu og stökkum möndlum sem fær hjörtu til að slá hraðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.