Menning

Ástar- og gleðisöngvar í Dóm kirkjunni

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hólmfríður er móðursystir Margrétar og þær frænkur hafa oft unnið saman áður.
Hólmfríður er móðursystir Margrétar og þær frænkur hafa oft unnið saman áður. Mynd/Úr einkasafni
Það er þannig að Biblíufélagið er 200 ára á þessu ári og dagskrá tónleikanna tekur mið af því. Efnið tengist allt textum Biblíunnar og tónlistin hefur verið samin við þá. Samt er það ansi fjölbreytilegt og ekkert yfirmáta hátíðlegt allt, þar eru ástarsöngvar og gleðisöngvar og alls konar yrkisefni.“

Þetta segir Hólmfríður Sigurðardóttir píanóleikari um tónleikana Ég hef augu mín til fjallanna í Dómkirkjunni annað kvöld. Ásamt henni kemur Margrét Hannesdóttir sópransöngkona þar fram. 

„Við vorum beðnar um að spila og syngja á þessum tónleikum og höfum verið að æfa síðustu vikur. Tónlistin er bæði íslensk og erlend og má þar nefna Ljóðaljóð Páls Ísólfssonar, Biblíuljóð Dvoráks, sungin á íslensku og Rejoice úr Messíasi eftir Händel,“ lýsir Hólmfríður. Hún segir þær Margréti oft hafa unnið saman áður enda séu þær frænkur.

„Margrét byrjaði að læra söng í Söngskólanum í Reykjavík, þar sem ég starfa sem píanóleikari. Meðal kennara hennar voru Ólöf Kolbrún og Diddú. Síðan fór hún í framhaldsnám til Bandaríkjanna og hefur oft komið fram, bæði hér heima, í Þýskalandi og á Ítalíu,“ lýsir hún.

Tónleikarnir eru síðasti viðburður ársins vegna 200 ára afmælis Biblíufélagsins. Þeir hefjast klukkan átta og eru ókeypis fyrir alla.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.