Menning

Skoðar land og liti og sækir formin mest í Suðurlandið

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Gísli B. Björnsson er þekktastur fyrir sína grafísku hönnun en hefur í auknum mæli fengist við myndlistina síðustu ár.
Gísli B. Björnsson er þekktastur fyrir sína grafísku hönnun en hefur í auknum mæli fengist við myndlistina síðustu ár. Vísir/GVA
„Ég er með vinnustofuna mína opna og er þar með stóran sal með þverskurði af því sem ég er að gera,“ segir grafíski hönnuðurinn Gísli B. Björnsson, sem nú sýnir málverk í Skipholti 1 til 13. desember, milli klukkan 14 og 18





„Ég er með vinnustofuna opna og er þar með stóran sal með þverskurði af því sem ég er að gera,“ segir Gísli.
„Myndirnar eru svo til allar á háveginn og ég er að skoða land og liti. Sæki mest af formunum í Suðurlandið, dálítið í Vesturlandið líka en svo getur verið um hvaða hól eða fjall að ræða sem er, bara úr mínum hugarheimi,“ segir Gísli. Hann kveðst hafa fengist við myndlist alla ævi en ekki alvarlega fyrr en eftir að hann hætti í grafískri hönnun og kennslu.



Gísli sækir myndefnið mest á Suðurlandið, en sumt verður til í hans hugarheimi.
„Síðustu ár hef ég gefið mér tíma til að fást við málverkið,“ segir Gísli sem vinnur með olíukrít.

„Það eru fáir myndlistarmenn að glíma við það verkfæri, skilst mér. Ég nota krítina alltaf sem skissutæki en er nú að gera myndir sem eru allt upp í 1x1,40 m að stærð.“

 Vinnustofan hans Gísla B. er í gamla Myndlista- og handíðaskólahúsinu, hann kveðst hafa tengst því húsi frá 1956, þegar hann hóf nám við skólann og þar verður hann á vaktinni frá tvö til sex fram á sunnudag. –






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.