Lífið

Glimmervæddi kærastann á tíu mínútum

Guðrún Ansnes skrifar
Útkoman er stórglæsileg. Birna hvetur sem flesta til að skella í glimmerskegg fyrir hátíðarnar.
Útkoman er stórglæsileg. Birna hvetur sem flesta til að skella í glimmerskegg fyrir hátíðarnar.
Ég var búin að sjá mynd af karlmanni með bleikt glimmerskegg hér og þar á samfélagsmiðlum og gat bara ekki stillt mig um að prófa,“ segir Birna Jódís Magnúsdóttir förðunarfræðingur sem  brá á það ráð að jólavæða kærastann, Þorgrím Tjörva Hallgrímsson, svo um munaði.

Birna lét hendur standa fram úr ermum og bjó til sitt eigið efni til glimmergerðarinnar, en hún hefur verið iðin við að prófa sig áfram þegar kemur að snyrtivörum, og sýnt afraksturinn við góðan orðstír á YouTube-rásinni sinni, þar sem hún gengur undir nafninu birnamagg. Hefur glimmerskeggið vakið heilmikla athygli og greinilega þörf á upplyftingu fyrir skeggjaða.

Þó svo að útkoman hafi verið stórbrotin er vinnan að baki dýrðinni mun minni en menn gætu ímyndað sér og því á svo gott sem allra færi.

Glimmerskegg í vinnslu.
„Þetta tók ekki nema kannski 10 mínútur í allt, en ég setti augnskugga undir glimmerið til að „lita“ skeggið,“ bendir Birna á og segir Þorgrím alsælan með með nýja útlitið. „Hann fílaði sig mjög vel með skeggið. Hann hafði orð á því að hann saknaði þess þegar hann vaknaði í morgun. Þetta er án efa eitthvað sem við skellum í aftur, en ég held að við verðum að fá okkur nýja ryksugu fyrst,“ útskýrir hún og skellir upp úr, en samhliða sindrandi skeggi var gólfið undirlagt.

Birna segist hafa fengið fjölda fyrirspurna varðandi uppátækið. „Já, fólk hefur sýnt þessu mikinn áhuga og hefur mjög gaman af þessu. Toggi hefur meira að segja fengið nýjar vinabeiðnir á Facebook út á glimmerskeggið. Svo virðist fólk líka vera mjög áhugasamt um hvernig húsið mitt líti út, en ég er auðvitað löngu búin að moppa.“ Skyldi ekki hafa verið bölvað vesen að ná þessu úr skegginu?

„Nei, alls ekki, ein góð sturtuferð og smá sjampó,“ svarar Birna að lokum og hvetur aðra skeggvaxna og glimmersinnaða til að láta slag standa. „Þó ekki nema til að eiga bara af sér mynd með glimmerskegg.“ 

Hér má fylgjast með Birnu glimmerskreyta skegg Togga:


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.