Menning

Gjöf til barna landsins

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Gjöfin nær til alls landsins og hefur áhrif til framtíðar,“ segir Guðný Dóra, forstöðumaður Gljúfrasteins.
"Gjöfin nær til alls landsins og hefur áhrif til framtíðar,“ segir Guðný Dóra, forstöðumaður Gljúfrasteins. Vísir/Stefán
„Við ætlum að gefa hefti með völdum textum úr mörgum bókum Halldórs Kiljan sem eiga að höfða til barna og henta til flutnings.

Það er gert í tilefni þess að í dag eru 60 ár frá því hann veitti Nóbelsverðlaunum viðtöku,“ segir Guðný Dóra Gestsdóttir, forstöðumaður Gljúfrasteins.

Hún stendur fyrir viðburði í Varmár­skóla í Mosfellsbæ í dag klukkan 13, ásamt Röddum, samtaka um vandaðan upplestur og framsögn. Þar mun Kristín Helga Gunnarsdóttir, formaður Rithöfundasambandsins, afhenda gjöfina formlega og krakkarnir í skólanum leika og syngja.



Baldur Sigurðsson, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands, valdi efnið upphaflega árið 2002, ásamt Ingibjörgu Einarsdóttur, að sögn Guðnýjar Dóru. Nú yfirfór hann það og gaf því nafnið Þegar lífið knýr dyra – um börn á þröskuldi fullorðinsára í verkum Halldórs Laxness.

Heftið er upp á 60 síður í PDF-formi og Guðný Dóra kveðst senda það í tölvupósti í alla skóla landsins.

„Það er gaman fyrir okkur á Gljúfrasteini að vita til þess að nú getum við náð til allra barna á landinu og haft áhrif til framtíðar,“ segir hún og tekur fram að efnið sé aðgengilegt á heimasíðu safnsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.