Fótbolti

Fyrsti sigurinn í hús hjá Neville

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Neville-bræðurnir á hliðarlínunni á Mestalla í kvöld.
Neville-bræðurnir á hliðarlínunni á Mestalla í kvöld. vísir/getty
Valencia vann sinn fyrsta leik undir stjórn Gary Neville þegar liðið bar sigurorð af C-deildarliði Barakaldo, 2-0, í seinni leik liðanna í spænsku bikarkeppninnar í kvöld.

Valencia vann fyrri leikinn á heimavelli Barakaldo, 1-3, og einvígið samanlagt 5-1.

Santi Mina kom Valencia yfir á 8. mínútu og eftir rúman hálftíma tvöfaldaði Álvaro Negredo forystuna og úrslitin þar með ráðin.

Þetta var þriðji leikur Valencia undir stjórn Neville sem tók við starfinu í byrjun mánaðarins. Áður hafði liðið tapað fyrir Lyon í Meistaradeild Evrópu og gert jafntefli við Eibar í spænsku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×